halló!
hoptimi-litil2.jpg
23.11.2020

Kennsla samkvæmt stundaskrá

Allir hóptímar, tónfræðitímar og hljómsveitaræfingar verða aftur á sínum stað í húsnæði Suzukitónlistarskólans.

Síðastliðinn föstudag ( 20. nóv.) var gerð breyting á reglugerð Heilbrigðisráðuneytisins vegna takmörkunar á skólastarfi sem gerir skólanum kleift að hefja hópkennslu á ný.

Gaman er að geta hafið skólastarfið að nýju samkvæmt stundaskrá 🙂

19.11.2020

Kennsla frá 18. nóv til og með 1. des

Einkatímar eru áfram á sínum stað en öll hópkennsla fellur niður. Tónfræðikennarar verða áfram í rafrænu sambandi við sína nemendur.

02.11.2020

Kennsla til og með 17. nóvember nk.

Samkvæmt nýrri reglugerð um takmarkanir á skólastarfi vegna Covid 19 sem tekur gildi í dag 3. nóvember og gildir til og með 17. nóvember nk. þá er tónlistarskólum heimilt að sinna einstaklingskennslu.

Einkatímar eru því á sínum stað en öll hópkennsla fellur niður. Tónfræðikennarar verða áfram í rafrænu sambandi við sína nemendur.



Myndasafn

IMG_7679 (1).jpg