hoptimi-litil2.jpg

Saga skólans

Suzukitónlistarskólinn í Reykjavík var stofnaður þann 4. maí 1988. Frumkvöðull að stofnun hans var Haukur F. Hannesson cellóleikari og Suzuki cellókennari. Haukur hafði áður (þann 4. nóvember 1985) haft frumkvæði að stofnun Íslenska Suzkisambandsins, og gerðist það rekstar- og eignaraðili skólans við stofnun hans. Hlaut skólinn nafnið Tónlistarskóli Íslenska Suzukisambandsins og bar það nafn þar til að sambandið hætti afskiptum af rekstri hans árið 2000, er skólinn varð sjálfseignarstofnun.

Forsaga stofnunar skólans var sú að hugmyndir Shinichi Suzuki og móðurmálsaðferðar hans höfðu borist hingað til lands uppúr miðjum áttunda áratugnum. Í upphafi þess níunda komu til landsins fiðlu- og cellókennarar sem hófu kennslu á Akureyri og í Reykjavík, og stuttu síðar bættist píanókennsla við. Aðferðin varð fljótt vinsæl og svo var komið í Reykjavík árið 1986 að brýn þörf var á að mæta þeirri miklu eftirspurn sem var eftir kennslu eftir Suzukiaðferð. Haukur F. Hannesson hóf viðræður við Reykjavíkurborg og Menntamálaráðuneyti síðla árs 1986 með það fyrir augum að stofna tónlistarskóla, samkvæmt þágildandi lögum um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla, sem starfaði eftir móðurmálsaðferð Shinichi Suzuki. Eftir að hafa átt viðræður við þessa aðila og skilað greinargerðum og umsögnum fagaðila um fyrirhugaða stofnun skólans fékk Haukur samþykki Borgarstjórnar Reykjavíkur og Menntamálaráðuneytis um að veita skólanum styrk til starfsemi sem hæfist árið 1988.



Myndasafn

Fiðluhóptími